Erum ađ búa til nýja myndasíđu
18. september 2007 klukkan 14:53
Halló allir, erum að reyna að búa til nýja myndasíðu, aðeins byrjuð, slóðin er 123.is/kiddioganna, kveðjur bestar...
Fimmtudagur
30. ágúst 2007 klukkan 14:16
Halló...
Eins og vanalega er allt gott að frétta af okkur,Ég(Anna) fér í vinnupartý á næsta laugardag vonandi verður það skemmtilegt.Eins og allir vita er ég nýbúin að eiga afmæli vorum bara tvö heima og borðuðum góðan mat og höfðum það kósý, svo fór ég með köku í vinnuna.Fór með Kidda út að borða s.l.mánudag í tilefni af því að 10 ár eru síðan ég flutti á víkina, það var skemmtilegt.Annars er bara allt svipað hjá okkur, gaman væri að þið væruð dugleg að skrifa mér hérna á síðunni kveðja best amb

Mánudagur 27. ágúst
27. ágúst 2007 klukkan 14:30
Heil og sæl...
Bara rétt að láta vita að við erum hress og kát, ætlum að byrja að blogga aftur eftir sumarfrí,sól og blíða á Húsavíkinni í dag og ekkert haust í loftinu.Höfðum það mjög gott í sumar og gerðum margt skemmtilegt, og gaman að segja frá því að í dag eru 10 ár síðan ég (Anna María) flutti til Húsavíkur, það er svo ótrúlega fljótur að líða tíminn...kveðja til allra sem við þekkjum amb

Ţriđjudagur
03. júlí 2007 klukkan 14:26
Halló,
Eins og vanalega er allt gott að frétta héðan, fengum gesti í gær, Elli frændi minn kom með sína fjölskyldu, gaman að þau skyldu kíkja við, nú förum við í bloggfrí fram í ágúst, ætlum að
njóta þess að vera í fríi og leika okkur, bestu kveðjur til allra sem við þekkjum
amb
Eins og vanalega er allt gott að frétta héðan, fengum gesti í gær, Elli frændi minn kom með sína fjölskyldu, gaman að þau skyldu kíkja við, nú förum við í bloggfrí fram í ágúst, ætlum að
Fimmtudagur
28. júní 2007 klukkan 15:07
Halló...Búin að láta græja mig fyrir sumarfríið, fór í klippingu og litun í gær og á snyrtistofuna í dag, er bara ný manneskja, eða þannig.Á von á gestum um helgina, okkur finnst alltaf svo gaman að fá gesti.Veðrið búið að vera leiðinlegt alveg síðan á sunnudag, en á að vera gott um helgina, sem betur fer.annars gengur allt vel, eigum eftir að vinna í viku,þá tekur sælan við, gott í bili kv amb
Fimmtudagur
21. júní 2007 klukkan 14:21
Sælt veri fólkið,
Allt gengur vel hjá okkur eins og vanalega, veðrið búið að vera mjög gott, smá rigning í morgun en mjög hlýtt.Nú líður óðum að sumarfríi hjá okkur, en við byrjum 9.júlí til 6.ágúst.Erum í smá flutningum í vinnunni, þar sem verið er að byggja við Bestabæ, en hann á að heita Grænuvellir og deildin mín á að heita Berg, en hét áður Ungabær.Bið að heilsa í bili kveðja best amb

14. júní 2007 klukkan 14:13
Sælt veri fólkið, þá erum við búin að fara austur með starfsmannafélögunum,það var mjög skemmtileg ferð, fórum í Papey, skoða álverið, þar hittum við Bjarna bróðir, fórum svo á Kárahnjúka, lentum í afmælisveislu, svo var grill, svo þetta var alveg frábær ferð, en við vorum pínu þreytt á mánudeginum enda engin furða en veðrið í þessari ferð var mjög gott, sól og blíða allann tímann.nú styttist í að við förum í sumarfrí, þá ætlum við að vera viku í Ölfusborgum með Önnu og Bjarna,jæja nóg í bili kveðjur bestar amb p.s. setjum myndir úr ferðalaginu inn fljótlega.
Ţriđjudagur
05. júní 2007 klukkan 14:28
Góðan daginn, eins og alltaf er allt gott að frétta af okkur hjónakornunum,veðrið búið að vera gott undanfarið,fórum í siglingu á sjómannadaginn, og í messu og sjómannakaffi.Um næstu helgi ætlum við á Djúpavog með verkalýðsfélaginu, það er tveggja daga ferð,þar á meðal ferð í Papey.gott í bili kveðjur til allra amb
Ţriđjudagur
29. maí 2007 klukkan 14:36
Halló allir,
Erum að vona að sumarið fari að koma...gott veður í gær og dag en spurning, hvað það endist lengi.Vorum að bera út fermingarskeyti fyrir Lionsklúbbinn um helgina.Annars bara allt gott að frétta, og endilega látið heyra í ykkur á síðunni okkar, kv best amb

fimmtudagur
24. maí 2007 klukkan 14:14
Jæja loksins kominn bloggtími, hér hafa verið gestir, mamma og pabbi komu úr Hafnarfirðinum, við fórum til Akureyrar með þeim, það var skemmtilegt, foreldrar Kidda komu svo í mat á laugardeginum, svo það var fjölskyldustemming.Erum búin að jafna okkur eftir kosningarnar, og bíðum nú bara eftir sumrinu, en úti er vetrarveður, ískalt og slydda og rigning til skiptis, ekki upplífgandi, en þetta hlýtur að lagast Kveðjur til allra sem við þekkjum amb